Tjörn á Fljótsheiði nr. 1

Tjörn á Fljótsheiði
Tjörn á Fljótsheiði. 2026. Olía á striga. 30×40 cm.

Fljótsheiði er hugsanlega fegursta heiði á Íslandi. Þegar maður kemur upp fyrir heiðarbrúnina upp af Fosshóli við Skjálfandafljót opnast víð útsýn bæði til norðurs og suðurs. Heiðin er eiginlega alveg flöt og afar gróin. Maður sér lengst inn á hálendið. Í forgrunni eru tjarnir því nægur virðist rakinn vera þarna. Á þessari mynd eru fjöllin í fjarska ósýnileg vegna misturs.